| Hid Illa Audvald |
|
miðvikudagur, október 30, 2002 Er Sturla Böðvarsson búin að skjóta sig í báðar fæturnar og annan handleggin?? Afhverju er það alltaf er ég heyrri minnst á Sturlu Böðvarsson hvort sem það sé í fréttum eða les um hann í menningarritinu morgunblaðinu og nú síðast í ísland í bítið í morgun þá er það alltaf neikvætt. Fyrir mér sem er aðeins leikmaður en ekki pólítískur öfgamaður einsog margir félagar mínir þá virðist það alltaf vera svo að Sturla Böðvarsson sé alltaf að stunda einhvern shaky business sem hann sé að reyna að grafa yfir og svo virðist sem að þetta landssímamál sem Sturla Böðvarsson óskar örugglega að sé grafið og gleymt sé alltaf að skjóta upp kollinum og nú síðast með því að hann neiti að birta skýrslu ríkisendurskoðunar um starfsloka samning Þórarins V. Þórarinssonar og framkvæmdir við sumarbústað hans á kostnað símans. Rök fyrir því að skýrsluna ætti ekki að birta vegna þess að hún gæti skaðað samkeppnisstöðu símans finnst mér frekar langsótt þar sem algjörlega ný stjórn er tekin við símanum og ólíklegt að mál sem þetta ætti að valda einhverjum skjálfta meðal hlutfjáreigenda og fjárfesta í dag og auk þess er síminn með yfirburða stöðu á samkeppnismarkaði. Líklegra finnst mér að í þessari skýrslu gætu komið fram einhver atriði vegna starfslokasamningsins sem Sturla Böðvarsson gerði við Þórarin sem gætu skaðað Sturla núna rétt fyrir kosningar. En hvort sem skýrslan er birt eða ekki þá virðist sem að þetta kalli á heilmikla neikvæða umfjöllun um vantraust og vafasama meðferð á almanna fé sem á endanum virðist alltaf leiða til Sturla Böðvarssonar. Það getur vel verið að einhvers staðar í undirmeðvitundinni er mér bara ílla við hann og þetta sé allt uppspuni og eigi við engin rök að styðjast. Ég vil þó varpa fram þeirri spurningu til sjálfstæðismanna hvort að þetta sé maðurinn sem þeir vilji að leiði framboð sjálfstæðismanna í Norðvesturlandskjördæmi?? Og hvet ég menn eindregið að lýsa yfir skoðun sinni á þessu og þá einkum svar frá öfgamanninum Hödda. Signed....Ársæll kúkalabbi posted by Arsaell | 10/30/2002 12:47:00 PM
Comments:
Sendu inn athugasemd
|
|
||||