Hid Illa Audvald


miðvikudagur, október 30, 2002  

Yfirlýsingin
Það er hörð barátta um þriðja sætið á prófkjörslistanum mínum.
1.Villi Egils
2.Guðjón Guðmunds
3.hmmm
4.hmmm
5.hmmm
6.hmmm

Þætti gaman ef að aðrir myndu setja inn sinn lista. Sama hvort þeir séu íhald eða ekki. Bara hvernig þeir/þær myndu setja upp. Þeir sem ekki eru hluti auðvaldsins ættu að setja inn á kommentinn.

Ásgeir leiðinlegi sem leirkúkar.

Ég samhryggist Barða. Hratt upp. Hratt niður. Er Bimmi Zits byrjaður í stjórnmálafræði?

posted by Asgeir | 10/30/2002 07:11:00 PM
 

Jæja bomban var defused eins og Counter-Strike spilarar segja...
Barði er bara kaldur úti og fær ekkert að taka þátt í að velja hvaða leið verður farin í að velja fulltrúa á lista til alþingiskosninga.
Samt fékk ég bréf um það í dag að mæta en síminn ræður víst yfir pósti.

posted by Bardi | 10/30/2002 05:43:00 PM
 

Yfirlýsing

Ég hélt að komratar mínir vissu eftir pistilinn minn um það hversu vonlaust það er að vera ,,góður flokksmaður" að þó maður tilheyri eða styðji ákveðinn flokk þýðir það ekki að maður sé fylgjandi honum í einu og öllu. Eine volk eine europa eine geld eða hvernig sem þetta var. (þetta er vísun í breska auglýsingu. Minn kemur til með að lýta sirka svona út. Kannski smá breytingar.

1. Villi Egils
2. Guðjón Guðmundsson
3. Einar Oddur, ekkki alveg klárt. Ég hitti manninn í dag.
4. ekki ákveðið
5.ekki ákveðið
6. Ekki ákveðið

Ásgeir, maðurinn sem ekki er á framabraut vegna þrjósku og gagnrýni.

Annars óska ég komrat sæla (sem ég veit að er leyni/opinbert íhald) til hamingju með jómfrúar pollí-bitch grein sína.

posted by Asgeir | 10/30/2002 01:30:00 PM
 

Er Sturla Böðvarsson búin að skjóta sig í báðar fæturnar og annan handleggin??

Afhverju er það alltaf er ég heyrri minnst á Sturlu Böðvarsson hvort sem það sé í fréttum eða les um hann í menningarritinu morgunblaðinu og nú síðast í ísland í bítið í morgun þá er það alltaf neikvætt. Fyrir mér sem er aðeins leikmaður en ekki pólítískur öfgamaður einsog margir félagar mínir þá virðist það alltaf vera svo að Sturla Böðvarsson sé alltaf að stunda einhvern shaky business sem hann sé að reyna að grafa yfir og svo virðist sem að þetta landssímamál sem Sturla Böðvarsson óskar örugglega að sé grafið og gleymt sé alltaf að skjóta upp kollinum og nú síðast með því að hann neiti að birta skýrslu ríkisendurskoðunar um starfsloka samning Þórarins V. Þórarinssonar og framkvæmdir við sumarbústað hans á kostnað símans. Rök fyrir því að skýrsluna ætti ekki að birta vegna þess að hún gæti skaðað samkeppnisstöðu símans finnst mér frekar langsótt þar sem algjörlega ný stjórn er tekin við símanum og ólíklegt að mál sem þetta ætti að valda einhverjum skjálfta meðal hlutfjáreigenda og fjárfesta í dag og auk þess er síminn með yfirburða stöðu á samkeppnismarkaði. Líklegra finnst mér að í þessari skýrslu gætu komið fram einhver atriði vegna starfslokasamningsins sem Sturla Böðvarsson gerði við Þórarin sem gætu skaðað Sturla núna rétt fyrir kosningar. En hvort sem skýrslan er birt eða ekki þá virðist sem að þetta kalli á heilmikla neikvæða umfjöllun um vantraust og vafasama meðferð á almanna fé sem á endanum virðist alltaf leiða til Sturla Böðvarssonar. Það getur vel verið að einhvers staðar í undirmeðvitundinni er mér bara ílla við hann og þetta sé allt uppspuni og eigi við engin rök að styðjast. Ég vil þó varpa fram þeirri spurningu til sjálfstæðismanna hvort að þetta sé maðurinn sem þeir vilji að leiði framboð sjálfstæðismanna í Norðvesturlandskjördæmi?? Og hvet ég menn eindregið að lýsa yfir skoðun sinni á þessu og þá einkum svar frá öfgamanninum Hödda.

Signed....Ársæll kúkalabbi

posted by Arsaell | 10/30/2002 12:47:00 PM
 

The Inside Story!

Jaeja nu fara kanarnir ad kjosa bara, og kosningabarattan er ad na hamarkinu...Adan var eg ad glapa a tv og sa einn republicanan vera ad auglysa sig, nadi ekki nafninu, en hvad um tad...Hann var uti i skogi med hagglabyssuna sina audvitad, og auglysingin snerist ad mestu leiti um tad ad republicaninn skaut leirdufur a medan konan hans hlod byssuna...Alveg 100% ekki pro guncontrole typan tar a ferd, en hann hafdi nu samt hrokann til ad segjast aettla ad berjast gegn glaepum...Eg audvitad hristi hausinn og fussadi i anda Ommu Biu eftir tessa smekklegu auglysingu...Afhverju fuss og svei? Tja i 1. lagi, er eg algjorlega a moti byssum og odrum drapstolum og i 2. lagi, ta fynnst mer kosningabarattan herna vera algjorlega malud af einhverju svona ofbeldis, strids og aesifrettabulli...Enginn gefur ser tima til ad skoda innlendu vandamalin, sem bytheway nog er af...

Tessi "frabaera" auglysing var alveg lysandi fyrir malefnin sem hafa verid efst a baugi i fjolmidlunum herna...Iraq...Sniparnir ogurlegu...terrorismi...og eg veit ekki hvad og hvad...Tad sem ljadist ad skyra almenningi fra, var eftirfarandi...Eftir ad Bush og stjornin hans tok vid:

Hafa 2 milljonir starfa i einkageiranum tapast...
Hafa 1,3 milljonir Amerikana dottid nidur fyrir fataektarmorkin...
Hafa 1,4 milljonir Amerikana misst sjukratrygginguna sina...
Hefur atvinnuleysi aukist um 2% og langtima atvinnuleysi naestum tvofaldast...
Hefur Samtals efnahagsumsvif aukist um 1%...tad laegsta sem nokkur stjorn hefur afrekad i 50 ar...
Eg tori valla ad minnast a hlutabrefin, tvi ad tar erum vid ad tala um einhverjar stjarnfraedilegar tolur...4,5 trilljonir eda eikkvad alika...
Og svo eru einhver 45 af 50 rikjum sem eiga i efnahagslegum erfidleikum og hafa ordid ad haekka skatta og draga seglin saman...

Tetta eru rokin sem vid myndum alveg 100% sja demokratana nota i kosningabarattunni, en tau hafa algjorlega drukknad i fjolmidlafarinu...Kannarnir syna ad folk hefur valla hugmynd um astandid a efnahaginum...Tad er ekki fyrr en tad er buid ad missa vinnuna sem tad rumskar og attar sig a tvi ad tad eru fleiri malefni, fyrir utan ad drepa handklaedahausa, mikilvaeg...Bush stjornin hefur natturlega algjorlega freead sig af tessum asokunum og kennir Clinton og Co um ad hafa skilad af ser slaemu bui...

Kosningarnar herna eru lika alveg mjog mikilvaegar fyrir taer sakir ad republicanarnir gaetu nad badum tinghusunum og eg held tad se nu ekki snidugt ad hafa forseta,senate og house med somu markmid...Tad hefur ekki gerst sidan 1955 ad republicanarnir hafi haft stjorn a ollu saman og eg er nokkud sannfaerdur um tad, ad tad verdi ad hafa eikkvad motvaegi...Serstaklega vid hann Bosa!...I gegnum tidina, tegar ad svona stada hefur komid upp hafa stjornarandstaedingarnir oftast unnid fylgi i seinni kosningunum, en eins og stadan er i dag, a eg ekki erfitt med ad trua tvi ad republicanarnir naedu Senateinu lika...Jaeja...Bidum og sjaum hvad gerist...



Johannes Checks and Balances Gislason

posted by Jóhannes | 10/30/2002 06:17:00 AM


þriðjudagur, október 29, 2002  

Ný könnun

Lesendur auðvaldsins eru sammála um það að Samfylkingin sé stefnulaus, þó eru nokkrir sem telja hana vera Alþýðubandalagið í nýjum búning.

Ég ætla halda því fram að blómabændur hafi verið komnir með svo mikið kverkatak á Alþýðuflokknum vegna vangoldina skulda fyrir allar rósirnar sem þeir keyptu og gáfu. Þess vegna ákváðu skuldugir kratarnir að breyta um nafn og fá nýja liðsmenn. Núna er þetta bara japanski fáninn. Punktur í miðju. Ekkert til að gefa. Engum að skulda.

Ásgeir, vinur alþýðunnar.

posted by Asgeir | 10/29/2002 01:41:00 PM
 

Áskorun

Ég skora á Barða, fulltrúa auðvaldsins í sambandi úngra bænda sunnanmegin í borg óttans. Segi okkur aðeins meira frá þessu máli. Frá troðningi vafasama slaufumannsins og hvernig hann kemur inn í þetta allt saman.

Geiri, maður með rætur í framsókn.

posted by Asgeir | 10/29/2002 01:34:00 PM
 

Bara að setja þetta inn upp á undirskriftina.
Sprengja í samvinnufélagi ungra í Reykjavík suður og Barði er einn eftir í stjórn.

posted by Bardi | 10/29/2002 01:28:00 PM
 

Hjálmar Blöndal

Hjálmar Blöndal landsþekktur leynimakkari, bifrestingur, blaðamaður og fyrrverandi heimdellingur sótti um stöðu fréttastjóra RÚVs. Það sem gerir þetta að merkilegri frétt að fyrsta dag og okkar Hödda hér á Bifröst sagði ég við hann eða hann við mig ,,djöfull er þessi gaur að bralla eitthvað vafasamt'' og benntum á hann. Þar sem hann læddist um eins og Jón spæjó. Svo fóru sögur að heyrast hér á bifröst þess efnis að hann væri blaðamaður með djúpa vasa, feit tengsl og færi oft í power lunch eða dinner með Sigurði G Guðjóns skjalaþjóf,(ég má segja þetta, dómur 272/2000 sem Sigurður vann sjálfur), meistara Jón Ólafs og Össa kallinum gaggalagú, hana nú. Nú hefur fengist staðfesting á þessu. Fyrstur á meðmæla lista Blöndals er enginn annar en Jón skífumaður og erki óvinur Hannesar Há. Samkvæmt heimildum innan skólans og fréttablaðsins. Ekki amalegt það að vera að háskólast í einhverjum anda og taka svo við fréttastjórastöðu. Ég vona svo sannarlega að við fáum Hjálmar sem fréttastjóra sameignar okkar allra...en þó verð ég að segja að líkurnar eru sama sem engar. Allar svona stöður eru auglýstar upp á djókið, það er löngu ákveðið hver verður fréttastjóri. Elín Hirst og þegar hún hættir verður það kyntröllið Logi Bergmann.
Ég mun beita mínum sömböndum til þess að Hjálmar fái starfið, en þau sambönd gætu ekki reddað mér pulsu í sjoppu. Annars verð ég að vara mig, því að ég veit að sidekickin hans Hjálmars, Guðni hópfélagi minn les bloggið og mun líklega segja Mister Blöndal frá skrifum mínum. Það efni verður kannski tekið upp á næsta leynifélagsfundi sem þeir tveir og gamli maðurinn skipa.
Signed....Geiri. Maðurinn sem leynimakkar leynifélögin.

posted by Asgeir | 10/29/2002 12:23:00 PM
 

Íhaldið daðrar
Þó ég sé nú bölvað íhald, þá vona ég að Ágúst Ágúst Ágúst úngi equal-man komist inn. Piltur er ekki svo vitlaus og ekki veitir af fólki með þekkingu á Hagfræði hjá alþýðubandalaginu hinu nýja.

Nema náttla að Ríkismörður komist inn, íslenskufræðingurinn var nú einu sinni aðstoðamaður fjármálaráðherra.

posted by Asgeir | 10/29/2002 08:28:00 AM


mánudagur, október 28, 2002  

Um mannlegan breyskleika

Það kom mér nokkuð á óvart það sem Gísli sagði í dag og fréttir um átök á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar. Þannig er að ég fór á fund í síðustu viku hjá Samfylkingunni á Akranesi þar sem þetta þing var til umræðu, þar fór mest allur tíminn í að finna fólk sem gat farið til Hólmavíkur og tekið sæti í kjördæmisráði, kom það fram á þessum fundi að tillaga meirihluta lá fyrir um uppstillingu og tillaga minnihluta um prófkjör en lítið var rætt um kosti og galla hvors fyrir sig. Ég fór því og spurði Jóhann Ársælsson hvað það fólk sem færi frá Akranesi ætlaði að kjósa. Hann svaraði því að það væri val hvers og eins hvað hann kysi en honum fyndist prófkjör hafa ýmsa ókosti sem hafa einmitt verið í umræðunni nú upp á síðkastið, svosem eins og það að stuðningsmenn annara flokka hafi áhrif á hverjir fari fram fyrir okkar flokk og er margt til í því.
Ég held að þau ummæli sem höfð voru eftir Gísla hafi sprottið upp úr svekkelsi yfir því að hlutirnir hafi ekki farið eins og hann óskaði og er það fyllilega skiljanlegt í hans stöðu. Einnig skil ég vel að Össur hafi ekki verið sáttur með þetta vegna þess að innanflokksdeilur af þessu tagi gera Samfylkingunni ekki gott og er ég sammála honum í því. Alþýðubandalag og Alþýðuflokkurinn eru báðir dauðir og engin ástæða til þess að fara að draga þá ínn í þetta(sbr. könnunina hér til hliðar). Ég held einfaldlega að Gísli hafi áttað sig á þessu, séð eftir því og dregið það til baka í stað þess að brenna allar brýr að baki sér.
Hvort þetta á eftir að vera Samfylkingunni til framdráttar skal ósagt látið, þannig er það nú að pólitík er ekki garanteraður bransi og með þessum breytingum sem nú verða á kjördæmaskipan verða óhjákvæmilega uppstokkanir og eins og Ásgeir segir þá bendir margt til þess að Gísli S. Einarsson sé einn þeirra sem lendir í þeim og er það miður.

Aðeins um Reiði Davíðs sem sumum hér á þessu vefriti er tíðrætt um. Ástæðan fyrir því að ekki er rætt um reiði Gumma Hallvarðs er sú að það sem sá ágæti maður segir hefur engin áhrif, hvorki á stefnu sjálfstæðisflokksins eða sköllótta listamenn úti í bæ. Það er nú einu sinni þannig að Davíð ræður og það sem hann segir hefur áhrif til góðs eða ills og getur hann þá átt von á að sitja undir gagnrýni ef það sem hann segir eða gerir gæti talist óábyrgt af manni í hans stöðu. Til þess er ætlast af stjórnarandstöðu að þeir veiti þeim sem eru við völd hverju sinni aðhald og gagnrýni á það sem betur má fara, ef svo væri ekki byggjum við því sem næst í einræðisríki án mannréttinda óháð því hvort ráðamenn aðhyllast hægri eða vinstir stefnu, heita Davíð Oddsson eða Stalín.
Ekki heldur fólk að hlutirnir séu eins sléttir og feldir og þeir kunna að virðast þegar búið er að dubba þessa menn upp í sjónvarpinu, alvöru pólitík á sér ekki stað í Kastljósinu eða Silfur Egils heldur að tjaldabaki þar sem menn plotta sín á milli og hrossakaup eiga sér stað. Þessir menn eru ekkert öðruvísi en allir aðrir, þeir hugsa um sína hagsmuni og eru mannlegir óháð því í hvaða flokki þeir telja sig vera.

posted by �mar | 10/28/2002 10:44:00 PM
 

"My brother disappeared in 1991," shouted a young man (Gunni), who cut the palm of his hand to daub the blood on a photo of Saddam as a sign of loyalty."
-ég held að fullt af fólki haldi í alvöru að svona sé raunin með Dabba Kóng.

posted by Asgeir | 10/28/2002 09:50:00 PM
 

Reiði Össurar, er allt orðið vitlaust
Einn af þingmönnum okkar akurnesinga, hinn mjög svo viðkunnalegi og ágæti Gísli Einarsson. Var eitthvað ósáttur við það að Jóhann Sælason plottaði gegn honum og líklega gerði það að verkum, sem miður er, að Gísli missi þingsæti sitt. (Samfylkingin velur líklega ekki með uppstillingaraðferð tvo menn úr sama bæ í tvö efstu) Plott Jóa kvótabraskara og skipasmiðs var að fá fleiri Allaballa úr sinni klíku til að rigga því að uppstillingarleið yrði farin, vegna þess að þar á hann fyrsta sætið víst. Gekk meira segja það langt að bjóða einum af auðvaldinu. Gísli sagði frá þessu hreint út í DV í morgun. Stuttu seinna kom maðurinn sem loksins hefur myndað sér skoðun, Össur Skarphéðinsson fram í morgunþætti Jóns Ólafssonar (Sjónvarpsrásin gengur undir nafninu Stöð 2, eða Búnaðarbanka Spy-TV) og lýsti yfir megnri ónægju sinni með þetta mál og setti upp Össurar svipinn sinn. Stuttu seinna dró Gísli nágranni minn og kunningi ummæli sín til baka. Mér er spurn, þegar að lýðræðið er fótum troðið innan póst-flokksins sem gefur sig út fyrir að vera sá lýðræðislegasti í heiminum og einn maður segir frá því. Er þá eðlilegt að maður sem býr yfir einni pólitískri sannfæringu, það er hvað Davíð Oddsson kúgar sína flokksmenn mikið og alla aðra í landinu, sýnir svona gífurlegan tvískinnung með því að slá sinn ágæta flokksmann leiftursnöggt í höfuðið? (svo notuð séu hans uppáhalds orð)
Annars held ég að Samfylkingin eigi eftir að tapa á þessu. Gísli er virkilega vel liðinn hér á Akranesi og meira að segja þingmaður flestra í mínum fjölskylduboðum, þó sérstaklega ömmu minnar. Stuðningur við Gísla á Akranesi nær langt fyrir utan kjarna Samfylkingarinnar vegna þess hversu kammó hann er. En Jói Ársæls er meira hardcore og kannski þessvegna sem bitru allaballarnir sem náðu ekki að vera með í SÍA (sósíalistafélag íslendinga austantjalds) söfnuðust saman og stálu sætinu hans Gísla.
Nútímaleikinn, ástin á lýðræðinu, pósturinn, stefnan og andinn er lítils virði þegar keppa á að eigin hagsmunum. Eins og alltaf.

Ásgeir, þó ekki stuðningsmaður Samfylkingarinnar, en ánægður með Gísla.

posted by Asgeir | 10/28/2002 07:57:00 PM
 

Hörður þú ert svo opinn og víðsýnn. Vinstrivilla og kynvilla. Einhver tenging? Já bæði jafn afkáralega heimskuleg orðasambönd, sem henta íhaldsmönnum(á öllum sviðum) en ekki einhverjum sem (þykist?) vera frjálslyndur. Taktu þér tak Hörður og hlustaðu á eitthvað annað en það sem þú vilt heyra svona öðru hverju.

posted by Bardi | 10/28/2002 03:49:00 PM
 

Fleiri skólar bjóða upp á lögfræðinám

Jæja fleiri bætast í hópinn. Lesa um það hér...

posted by Asgeir | 10/28/2002 12:16:00 PM
 

Ný könnun
Samkvæmt seinustu þá verður Gaui Guð í fyrsta, Sturla Bö-á-hann Böðvarsson í öðru og meistari Villi Egils í þriðja.

posted by Asgeir | 10/28/2002 10:53:00 AM
 

Það ættu allir að eiga einn.

Kæru félagar, ég lýsi yfir ánægju minni með Laugardagskvöldið. Það var gaman að hitta öll fíflin á einum stað og skála í bjór gestgjafans. Hæfilega margir, gott eldhús, nóg að éta. Eins og í fornsögunum þá hlýtur Barði mikið lof fyrir þessa veislu og er meiri maður fyrir. Sveinbjörn kom og varð kófdrukkinn sem endra nær. Símón Collage-drop-out beitti kindingar aðferð á Hagisson sjeikí-múd Ægisson sem fór offari. Doddi varð bara fyllri og fyllri og endaði í ARV andanum með símann á lofti. ARV reyndi að redda kynmökum við under-age Dagfinn og Sæli og Ommi beittu sjarmanum á pínuchicks sem voru í andanum. Gruna mig og Barða um að hafa hagað okkur almennilega, aldrei þessu vant. Það sást svo sem alveg hvert stefndi hjá Leibbanum. Go Leibbi, reprezentaðu Auðvaldið. Í alla staði var þetta pizzuátsbjórdryggkjusöngvaradiss kveld alveg frábært, ég gef því 5 stjörnur. Barði fær 5 stjörnur fyrir gleðskapinn og húsið hennar Dagmar einnig. Vinir hans Barða, Hanson-gaurinn og hinn sem hélt að hann væri Pétur-bassaleikari voru líka alveg að meika skít, þarna frammi. Þannig að þetta ætti ekki að vera Polo, allir ættu að eiga einn. Heldur Heimska vini, allir ættu að eiga einn.

Ásgeir, maðurinn við lækinn.

posted by Asgeir | 10/28/2002 10:42:00 AM
 

Svo má auðvitað búa til samsæriskenningu eins og Hallgrímur Helgason. Vandinn við hana er auðvitað sá að Baugi er stjórnað af gömlum samstarfsmönnum Davíðs og það var annar forystumaður í stjórnmálum sem sendi Baugi hótunarbréf, ekki Davíð. Auðvitað má vel vera að Davíð sé bara að frekjast eins og venjulega en auðvitað gæti líka verið að hann hefði raunverulegar áhyggjur af hringamyndun á Íslandi, samkeppnisstöðu á matvörumarkaðnum og háu matvöruverði.

Einn af fáum ekta leftís á Íslandi skrifar þessa grein. Maðurinn er ekta frjálslyndur vinstrimaður, þeir eru ekki fleiri. Tja, nema Símón fari að ákveða sig hvar hann stendur.
Ármann Jakobsson.

Þetta er annars tekið af Múrnum, kvet alla til að lesa greinina eftir hann síðan 2001 sem heiti dóprugl? gáið bara í leitarvélina.

Ásgeir fituhjass

posted by Asgeir | 10/28/2002 10:19:00 AM
 

Monníngunum er ekki illa varið í Andríkið
Mér sveið í augun þegar ég kom heim á föstudaginn og sá að ATLAS reikningurinn minn var tæpar 70.000 krónur fyrir utan húsaleigu. Ég þakkaði mínu sæla fyrir að Jóhanna Sigurðar væri ekki ríkisstjórn og blótaði öllu skyndibitaátinu sem ekkert hefur gert nema mig fátækari í krónum en ríkari í aukakílóum. Steig á viktina í gær og sá tölu sem er þakið, héðan í frá er leiðin niður. Aftur niður í 72,5 kg. Mér finnst ég fínn í því. Of cheap í 70,5. Þannig að því er hér með lýst yfir að ég er í megrun. Þetta gengur ekki lengur. En það var ekki þetta sem ég ætlaði að tala um.

Ég styrki andríki um einhverja aura í hverjum mánuði og lýður vel með það. Andríki er án efa mesta skemmtilesning sem býðst ókeypis og keypis á hverjum degi.

Snilldin í dag:
Í stefnuskrá Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosningar var nefnilega boðað að þegar Samfylkingin hefði fengið 35% fylgi og myndað ríkisstjórn með Margréti Frímannsdóttur sem forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur sem ráðherra félagslega húsnæðiskerfisins, Guðmund Árna Stefánsson sem heilbrigðisráðherra, Gísla S. Einarsson sem ráðherra bílaviðskipta og Össur Skarphéðinsson líffræðing á Vesturgötu sem ráðherra matvöruviðskipta yrði tekið til óspilltra málanna við að leggja hér á „almennan koldíoxíðskatt“ svo vitnað sé í stefnuskrá fylkingarinnar.

Það er að koma prófkjör hjá Samfylkingunni í Norðaustur kjördæminu og frambjóðendur gera allt nema koma naktir fram. Kristján L. Möller heitir einn þeirra.

posted by Asgeir | 10/28/2002 10:02:00 AM
 

EBIT, earnings before intrest and taxes. Er þetta ekki eitthvað sem ykkur langaði að vita?

posted by Asgeir | 10/28/2002 09:07:00 AM
 

Allt að verða vitlaust hjá Börðunum í R-south. Ommarnir hérna í Northwest líka alveg að tjúllast

Barðarnir

posted by Asgeir | 10/28/2002 08:37:00 AM
 

Barðadjamm 5/5
Ræði um það seinna, en vildi benda ungum auðvaldssinnum og öfgamiðjumönnum, seríós fólki, kynmönnum og rassgötum á að lesa þessa síðu. Go Erla.
Bloggið hennar Erlu

-það er andi í samfylkingunni

posted by Asgeir | 10/28/2002 08:14:00 AM


sunnudagur, október 27, 2002  

Bill er madurinn
Bara þakka herra bill fyrir gífurlega góðan samfagnað í gær, fríar veitingar, feitar pitsur, audvaldid og ungmenni. Bardi fær 5 stig af 5 mögulegum fyrir þetta og finnst mér að gera ætti hann að alþýðuhetju og setja hann á frímerki og hvet ég menn eindregið að taka hann sér til fyrirmyndar.

signing out... Don Sæli gíslatökumaður

posted by Arsaell | 10/27/2002 07:11:00 PM
 

Góð frammistaða í gær hjá Auðvaldinu. Ég á enga pizzu eftir hehe

posted by Bardi | 10/27/2002 12:00:00 PM


laugardagur, október 26, 2002  

Lesendur Auðvaldsins hafa talað
Sturla Böðvarsson hlýtur yfirgnæfandi stuðning í könnun hér á þessu vefrit, Af þessu má ætla að eðlilegast sé að þessi mjög svo hæfi maður sem gegnt hefur embætti samgönguráðherra muni leiða lista flokksins í norðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Engan skal undra þessa niðurstöðu þar sem Sturla er gífurlega slingur pólitíkus og einkar laginn við að leysa vandamál sem upp koma fljótt og örugglega. Sjálfstæðismenn í norðvesturkjördæmi verða sko ekki sviknir af því að fylkja sér bak við þennan ídealíska hugsjónamann. Sömuleiðis er þetta verðugur andstæðingur fyrir okkur sem ekki hafa enn séð villu síns vegar og kosið sjálfstæðisflokkinn, ég leyfi mér að fullyrða að ef nokkur getur komið vitinu fyrir okkur þá verður það Sturla Böðvarsson með hrífandi persónuleika sinn, orðsnilld og brennandi eldmóð. Já, fátt virðist geta komið í veg fyrir mikinn kosningasigur sjálfstæðismanna í komandi kosningum ef Sturla Böðvarsson verður þar fremstur í flokki, ekki hvað síst í ljósi þess góða starfs sem hann hefur unnið á síðastliðnu kjörtímabili í samgönguráðuneytinu. Sturla hefur staðið af sér allar þær ósvífnu ásakanir sem á hann hafa verið bornar (s.s að múta aðstandendum fórnarlamba skerjafjarðarslyssins, afskipti af landsímanum o.fl) og stendur eftir sterkari en nokkru sinni fyrr.
Maðurinn með sixties gleraugun á svo sannarlega framtíðina fyrir sér.

posted by �mar | 10/26/2002 06:55:00 PM
 

Asnar allt saman en þið vitið af afmælinu mínu í kvöld er það ekki beygla´s....?

posted by Bardi | 10/26/2002 10:45:00 AM


föstudagur, október 25, 2002  

Sem áhugamanni um íslenska knattspyrnu og velfarnað Jóhannesar Gíslasonar. Verð ég að segja frá því að ég er einn stærsti hluthafi FRÉTTABLAÐSINS. nú getur Hannes vinur minn sofið rótt.

Ásgeir, maðurinn sem veit hvernig póstkosningin fer.

posted by Asgeir | 10/25/2002 09:51:00 AM
 

Eftir miklar getgátur undanfarna daga og vikur um hver eigi Fréttablaðið fannst mér kominn tími til að lýsa því hér með yfir að það er ég sem er eigandi Fréttablaðsins.

Hörður Stórgóssherra & Erkiklerkur.

posted by Hordur | 10/25/2002 09:47:00 AM
 

Vinstrimenn með amnestí merkið í barminum bjarga lýðnum frá stórhættulegum stórfyrirtækjum!



posted by Asgeir | 10/25/2002 09:15:00 AM
 

Ný Könnun
Sem slefberi auðvaldsins bið ég mannskapinn að svara þessari spurningu.



Það er mál manna að Leibbi eigi ekki sjens.

posted by Asgeir | 10/25/2002 08:10:00 AM


fimmtudagur, október 24, 2002  

Þurfum að fara redda oss demantanámu svo að við getum auðvaldast í alvöru. Ekki eitthvað fiskiauðvaldsbullogvæl.

Ásgeir hertogi.

posted by Asgeir | 10/24/2002 06:15:00 PM
 

Rippoff

Tjetjenarnir hafa greinilega lesid Audvaldid...<...>...farnir ad raena folki og heimta! ;)

posted by Jóhannes | 10/24/2002 04:29:00 AM
 

Alhlida lausn fyrir Ecuador og Audvaldsmenn!

Ecuador i fokki bara!...Afhverju gera teir bara ekki eins og Mexiko og Columbia? Tar er vist ordid svaka sport og buisness ad stela folki og heimta lausnarfe. Tad er ordid svo vinsaelt ad folk er haett ad nenna uti hradbanka, snyr ser bara ad naesta manni og stelur honum! Audvitad er svo loggan algjorlega spillt og hjalpar bara til ef teir fa sinn skerf. Einnig eru teir grunadir um ad standa fyrir starfseminni. Nu er vinnuafl i tessum londum frekar odyrt, tannig ad tad ladar ad frekar mikid af framleidslu og tilheyrandi burgeisum. Tessum monnum er natturlega stolid grimmt og heimtad peninga fyrir ta, eda annars...Astandid er ordid svo slaemt ad fyrirtaekin sem flytja tangad, eru farinn ad borga ahaettutokknun til yfirmannanna...

Eg byrti her fyrir nokkrum dogum grein um hvernig Audvaldsmennirnir gaetu komist a toppinn. Hvernig vaeri nu ad starta tessum buisness lika? Gaeti ordid agaetis bubot! Eg veit ad Hoddi myndi allavega fila tetta ;)

Johannes El Bandito

posted by Jóhannes | 10/24/2002 03:36:00 AM
Tengslanetid
Myndir Geiri
Meiri Geiri
Auðvalds spjall
Disa
Joe Bloggs
Joe & Co
JonFri-Blogg
LudaKriss
KJ
LeibbiDjass
Worldpeace
Gegill
SjabbiLaw
Villi Vill
Geiri
Stjornublogg
Skubb
Mikaelismi
Draumaland
Hakon Baldur
Svenni
Drifa
Murinn
Mani
Mundi
Mersol
The Cock
Haschol islandus
Sokrates
Sverrir
Becker-Posner
Asgeir J
FUGO
TADDS
Smasaga
Das Flygenring
Harpa Hreins
Atli Hardar
Deiglan.com
Andriki
MorganGroup

Stebbifr pistlar
Stebbifr. blogg


My blog is worth $18,629.82.
How much is your blog worth?